EiginleikarVerðskráSkilmálar
InnskráningPrófaðu frítt

Skilmálar Teldu

Síðast uppfært: 21.5.2026

1. Almennt

Þessir skilmálar gilda um notkun á bókhaldskerfinu Teldu, sem rekið er af Friðriksson ehf. Með því að stofna aðgang og nota kerfið samþykkir notandi (hér eftir "Viðskiptavinur") þessa skilmála í heild sinni.

2. Notkun á kerfinu (Beta útgáfa)

Kerfið er sem stendur í Beta prófunum. Meðan á Beta tímabili stendur er notkun kerfisins ókeypis og án takmarkana á fjölda færslna, notenda eða fyrirtækja. Friðriksson ehf áskilur sér rétt til að breyta þessu eða kynna til leiks gjaldskrá síðar með minnst 30 daga fyrirvara.

3. Ábyrgð á gögnum og VSK skilum

Teldu auðveldar útreikninga á VSK, launum og annarri fjárhagslegri uppgjörsvinnu og býður upp á beina tengingu við Skattinn (RSK). Viðskiptavinur ber einn fulla og óskerta ábyrgð á því að þær tölur sem sendar eru til Skattsins séu réttar.

Friðriksson ehf ber enga ábyrgð á röngum útreikningum vegna innsláttarvillna, galla í kerfi, misskilnings á reglum Skattsins eða af neinum öðrum ástæðum. Viðskiptavini ber að yfirfara allar fjárhæðir áður en þær eru staðfestar og sendar rafrænt.

4. Gögn og Persónuvernd (GDPR)

Friðriksson ehf virðir friðhelgi einkalífsins. Öll gögn sem vistuð eru í kerfinu, hvort sem það eru reikningar, kvittanir eða launaupplýsingar, eru trúnaðarmál og eingöngu aðgengileg viðkomandi notendum þess fyrirtækis. Persónuverndarstefna þessi uppfyllir kröfur laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.

Gögn eru geymd í öruggu umhverfi og engum þriðja aðila er veittur aðgangur að þeim nema lagaleg skylda krefjist þess. Viðskiptavinur ávallt á rétt á að óska eftir eyðingu á sínum gögnum með því að loka aðgangi sínum eða hafa samband við þjónustuver.

5. Afhendingarskilmálar

Teldu er hugbúnaður sem þjónusta (SaaS). Aðgangur að kerfinu veitist rafrænt, sjálfkrafa og samstundis um leið og notandi hefur stofnað aðgang eða staðfest greiðslu. Enginn flutningskostnaður á við þar sem engin efnisleg vara er afhent.

6. Afbókunar- og skilaréttur

Þar sem greitt er fyrir mánaðarlega áskrift að hugbúnaði, er hægt að segja áskriftinni upp hvenær sem er inni á þjónustuvef kerfisins án uppsagnarfrests. Ekki eru veittar endurgreiðslur fyrir þegar greidda mánuði, en aðgangur helst opinn út núverandi greiðslutímabil eftir uppsögn. Ef keypt hefur verið ársáskrift er ekki hægt að krefjast hlutfallslegrar endurgreiðslu ef hætt er í miðju tímabili, nema sérstaklega sé samið um annað.

7. Uppsögn og lokun aðgangs

Báðir aðilar geta hvenær sem er sagt upp notkun á kerfinu. Friðriksson ehf áskilur sér rétt til að loka fyrir aðgang ef um misnotkun eða lögbrot er að ræða.

8. Lögsaga

Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Íslensk lög skulu gilda um alla samninga milli aðila.